0 14 'ritn=Sl+2&ord='
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .
Advertise on JCSM -
-
Skip These Ads
-
Click here and add this page to your favorites!


Sálmarnir 2:
Einnig má skoða fyrri kafla eða næsta kafla.
- 0
- Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?
- 2
- Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:
- 3
- ,,Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra.``
- 4
- Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.
- 5
- Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:
- 6
- ,,Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga.``
- 7
- Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: ,,Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.
- 8
- Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.
- 9
- Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.``
- 10
- Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.
- 11
- Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.
- 12
- Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu,
- 13
- því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.