0 9 'ritn=Sk+1'
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .



Advertise on JCSM - Hear JCSM's Weekly Devotions via Podcast/RSS Feed! - Skip These Ads

You can advertise your site right here!Third Day, Switchfoot, and Jars of Clay - MercyMe and David CrowderClick here to learn more!

10,000 Wise Quotes and Spiritual Sayings by Jason Gastrich, Ph.D.

 JCSM's Top 1000 Christian Sites - Free Traffic Sharing Service! Join the Online Christ-Centered Ministries!

-

Jesus Christ Saves Ministries

Click here and add this page to your favorites!



Return to the JCSM Study Center!

The Icelandic Bible

Sakaría 1:

Einnig má skoða næsta kafla.
1
Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:
2
Drottinn var stórreiður feðrum yðar.
3
Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín _ segir Drottinn allsherjar _ þá mun ég snúa mér til yðar _ segir Drottinn allsherjar.
4
Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: ,,Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!`` En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér _ segir Drottinn.
5
Feður yðar _ hvar eru þeir? Og spámennirnir _ geta þeir lifað eilíflega?
6
En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: ,,Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört``?
7
Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:
8
Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.
9
Og er ég spurði: ,,Hverjir eru þessir, herra minn?`` svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: ,,Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru.``
10
Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: ,,Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.``
11
Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: ,,Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð.``
12
Þá svaraði engill Drottins og sagði: ,,Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?``
13
Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,
14
og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: ,,Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar
15
og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður.
16
Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni _ segir Drottinn allsherjar _ og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.
17
Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem.``