0 14 'ritn=Ok+2&ord='
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .
Advertise on JCSM -
-
Skip These Ads
-
Click here and add this page to your favorites!


Orðskviðirnir 2:
Einnig má skoða fyrri kafla eða næsta kafla.
- 1
- Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér,
- 2
- svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum,
- 3
- já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,
- 4
- ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,
- 5
- þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast þekking á Guði.
- 6
- Því að Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.
- 7
- Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,
- 8
- með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna guðhræddu.
- 9
- Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendni, _ í stuttu máli, sérhverja braut hins góða.
- 10
- Því að speki mun koma í hjarta þitt, og þekking verða sálu þinni yndisleg.
- 11
- Aðgætni mun vernda þig, og hyggindin varðveita þig,
- 12
- til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals,
- 13
- sem yfirgefa stigu einlægninnar og ganga á vegum myrkursins
- 14
- sem hafa gleði af því að gjöra illt, fagna yfir illsku hrekkjum,
- 15
- sem gjöra vegu sína hlykkjótta og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni,
- 16
- til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu, frá blíðmálugri konu sem annar á,
- 17
- sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns,
- 18
- því að hús hennar hnígur í dauðann, og brautir hennar liggja niður til framliðinna,
- 19
- þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur, og aldrei komast þeir á lífsins stigu, _
- 20
- til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra.
- 21
- Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því.
- 22
- En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.