0 9 'ritn=Ok+1'
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .
Advertise on JCSM -
-
Skip These Ads
-
Click here and add this page to your favorites!


Orðskviðirnir 1:
Einnig má skoða næsta kafla.
- 1
- Orðskviðir Salómons Davíðssonar, Ísraels konungs,
- 2
- til þess að menn kynnist visku og aga, læri að skilja skynsamleg orð,
- 3
- til þess að menn fái viturlegan aga, réttlæti, réttvísi og ráðvendni,
- 4
- til þess að þeir veiti hinum óreyndu hyggindi, unglingum þekking og aðgætni, _
- 5
- hinn vitri hlýðir á og eykur lærdóm sinn, og hinn hyggni nemur hollar lífsreglur _
- 6
- til þess að menn skilji orðskviði og líkingamál, orð spekinganna og gátur þeirra.
- 7
- Ótti Drottins er upphaf þekkingar, visku og aga fyrirlíta afglapar einir.
- 8
- Hlýð þú, son minn, á áminning föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinnar,
- 9
- því að þær eru yndislegur sveigur á höfði þér og men um háls þinn.
- 10
- Son minn, þegar skálkar ginna þig, þá gegn þeim eigi.
- 11
- Þegar þeir segja: ,,Kom með oss! Leggjumst í launsátur til manndrápa, sitjum án saka um saklausan mann,
- 12
- gleypum þá lifandi eins og Hel _ með húð og hári, eins og þá sem farnir eru til dánarheima.
- 13
- Alls konar dýra muni munum vér eignast, fylla hús vor rændum fjármunum.
- 14
- Þú skalt taka jafnan hlut með oss, einn sjóð skulum vér allir hafa`` _
- 15
- son minn, þá haf ekki samleið við þá, halt fæti þínum frá stigum þeirra.
- 16
- Því að fætur þeirra eru skjótir til ills og fljótir til að úthella blóði.
- 17
- Því að til einskis þenja menn út netið í augsýn allra fleygra fugla,
- 18
- og slíkir menn sitja um sitt eigið líf, liggja í launsátri fyrir sjálfum sér.
- 19
- Þannig fer öllum þeim, sem fíknir eru í rangfenginn gróða: fíknin verður þeim að fjörlesti.
- 20
- Spekin kallar hátt á strætunum, lætur rödd sína gjalla á torgunum.
- 21
- Hún hrópar á glaummiklum gatnamótum, við borgarhliðin heldur hún tölur sínar:
- 22
- Hversu lengi ætlið þér, fávísir, að elska fávísi og hinir háðgjörnu að hafa yndi af háði og heimskingjarnir að hata þekkingu?
- 23
- Snúist til umvöndunar minnar, sjá, ég læt anda minn streyma yfir yður, kunngjöri yður orð mín.
- 24
- En af því að þér færðust undan, þá er ég kallaði, og enginn gaf því gaum, þótt ég rétti út höndina,
- 25
- heldur létuð öll mín ráð sem vind um eyrun þjóta og skeyttuð eigi umvöndun minni,
- 26
- þá mun ég hlæja í ógæfu yðar, draga dár að, þegar skelfingin dynur yfir yður,
- 27
- þegar skelfingin dynur yfir yður eins og þrumuveður og ógæfa yðar nálgast eins og fellibylur, þegar neyð og angist dynja yfir yður.
- 28
- Þá munu þeir kalla á mig, en ég mun ekki svara, þeir munu leita mín, en ekki finna mig.
- 29
- Vegna þess að þeir hötuðu þekking og aðhylltust ekki ótta Drottins,
- 30
- skeyttu ekki ráðum mínum og smáðu alla umvöndun mína,
- 31
- þá skulu þeir fá að neyta ávaxtar breytni sinnar og mettast af sínum eigin vélræðum.
- 32
- Því að fráhvarf fávísra drepur þá, og uggleysi heimskingjanna tortímir þeim.
- 33
- En sá sem á mig hlýðir, mun búa óhultur, mun vera öruggur og engri óhamingju kvíða.