0 9 'ritn=Jn+1'
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .



Advertise on JCSM - Hear JCSM's Weekly Devotions via Podcast/RSS Feed! - Skip These Ads

You can advertise your site right here!Third Day, Switchfoot, and Jars of Clay - MercyMe and David CrowderClick here to learn more!

10,000 Wise Quotes and Spiritual Sayings by Jason Gastrich, Ph.D.

 JCSM's Top 1000 Christian Sites - Free Traffic Sharing Service! Join the Online Christ-Centered Ministries!

-

Jesus Christ Saves Ministries

Click here and add this page to your favorites!



Return to the JCSM Study Center!

The Icelandic Bible

Jónas 1:

Einnig má skoða næsta kafla.
1
Orð Drottins kom til Jónasar Amittaísonar, svo hljóðandi:
2
,,Legg af stað og far til Níníve, hinnar miklu borgar, og prédika móti henni, því að vonska þeirra er upp stigin fyrir auglit mitt.``
3
En Jónas lagði af stað í því skyni að flýja til Tarsis, burt frá augliti Drottins, og fór hann niður til Jaffa. Þar hitti hann skip, er ætlaði til Tarsis. Greiddi hann fargjald og steig á skip í því skyni að fara með þeim til Tarsis, burt frá augliti Drottins.
4
Þá varpaði Drottinn miklum stormi á sjóinn, og gjörði þá svo mikið ofviðri á hafinu, að við sjálft lá, að skipið mundi brotna.
5
Skipverjar urðu hræddir og hét hver á sinn guð. Og þeir köstuðu reiða skipsins í sjóinn til þess að létta á skipinu. En Jónas hafði gengið ofan í neðsta rúm í skipinu, lá þar og svaf vært.
6
Þá gekk stýrimaður til hans og sagði við hann: ,,Hvað kemur til, að þú sefur? Statt upp og ákalla guð þinn. Vera má að sá guð minnist vor, svo að vér förumst eigi.``
7
Nú sögðu skipverjar hver við annan: ,,Komið, vér skulum kasta hlutum, svo að vér fáum að vita, hverjum það er að kenna, að þessi ógæfa er yfir oss komin.`` Þeir köstuðu síðan hlutum, og kom upp hlutur Jónasar.
8
Þá sögðu þeir við hann: ,,Seg oss, hver er atvinna þín og hvaðan kemur þú? Hvert er föðurland þitt og hverrar þjóðar ertu?``
9
Hann sagði við þá: ,,Ég er Hebrei og dýrka Drottin, Guð himinsins, þann er gjört hefir hafið og þurrlendið.``
10
Þá urðu mennirnir mjög óttaslegnir og sögðu við hann: ,,Hvað hefir þú gjört!`` Mennirnir vissu sem sé, að hann var að flýja burt frá augliti Drottins, því að hann hafði sagt þeim frá því.
11
Því næst sögðu þeir við hann: ,,Hvað eigum vér að gjöra við þig, til þess að hafið kyrrist fyrir oss?`` _ því að sjórinn æstist æ meir og meir.
12
Þá sagði hann við þá: ,,Takið mig og kastið mér í sjóinn, mun þá hafið kyrrt verða fyrir yður, því að ég veit, að fyrir mína skuld er þessi mikli stormur yfir yður kominn.``
13
Þá lögðust skipverjar á árar og reyndu að komast aftur til lands, en gátu það ekki, því að sjórinn æstist æ meir og meir.
14
Þá kölluðu þeir til Drottins og sögðu: ,,Æ, Drottinn! Lát oss eigi farast, þótt vér glötum lífi þessa manns, og lát oss ekki gjalda þess, svo sem vér hefðum fyrirkomið saklausum manni, því að þú, Drottinn, hefir gjört það, sem þér þóknaðist.``
15
Þeir tóku nú Jónas og köstuðu honum í sjóinn. Varð hafið þá kyrrt og sjávarólguna lægði.
16
En skipverjar óttuðust Drottin harla mjög, færðu Drottni sláturfórn og gjörðu heit.