0 14 'ritn=Jk+2&ord='
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .



Advertise on JCSM - Hear JCSM's Weekly Devotions via Podcast/RSS Feed! - Skip These Ads

You can advertise your site right here!Click here to learn more!

10,000 Wise Quotes and Spiritual Sayings by Jason Gastrich, Ph.D.

 JCSM's Top 1000 Christian Sites - Free Traffic Sharing Service! Join the Online Christ-Centered Ministries!

-

Jesus Christ Saves Ministries

Click here and add this page to your favorites!



Return to the JCSM Study Center!

The Icelandic Bible

Hið almenna bréf Jakobs 2:

Einnig má skoða fyrri kafla eða næsta kafla.
1
Bræður mínir, farið ekki í manngreinarálit, þér sem trúið á dýrðardrottin vorn Jesú Krist.
2
Nú kemur maður inn í samkundu yðar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum, og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum,
3
ef öll athygli yðar beinist að þeim, sem skartklæðin ber, og þér segið: ,,Settu þig hérna í gott sæti!`` en segið við fátæka manninn: ,,Stattu þarna, eða settu þig á gólfið við fótskör mína!``
4
hafið þér þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með vondum hugsunum?
5
Heyrið, bræður mínir elskaðir! Hefur Guð ekki útvalið þá, sem fátækir eru í augum heimsins, til þess að þeir verði auðugir í trú og erfingjar þess ríkis, er hann hefur heitið þeim, sem elska hann?
6
En þér hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku, sem undiroka yður og draga yður fyrir dómstóla?
7
Eru það ekki þeir, sem lastmæla hinu góða nafni, sem nefnt var yfir yður?
8
Ef þér uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: ,,Þú skalt elska náunga þinn sem sjálfan þig``, þá gjörið þér vel.
9
En ef þér farið í manngreinarálit, þá drýgið þér synd og lögmálið sannar upp á yður að þér séuð brotamenn.
10
Þótt einhver héldi allt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess.
11
Því sá sem sagði: ,,Þú skalt ekki hórdóm drýgja``, hann sagði líka: ,,Þú skalt ekki morð fremja.`` En þó að þú drýgir ekki hór, en fremur morð, þá ertu búinn að brjóta lögmálið.
12
Talið því og breytið eins og þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins.
13
Því að dómurinn verður miskunnarlaus þeim, sem ekki auðsýndi miskunn, en miskunnsemin gengur sigri hrósandi að dómi.
14
Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann?
15
Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi
16
og einhver yðar segði við þau: ,,Farið í friði, vermið yður og mettið!`` en þér gefið þeim ekki það, sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það?
17
Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin.
18
En nú segir einhver: ,,Einn hefur trú, annar verk.`` Sýn mér þá trú þína án verkanna, og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum.
19
Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast.
20
Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast, að trúin er ónýt án verkanna?
21
Réttlættist ekki Abraham faðir vor af verkum, er hann lagði son sinn Ísak á altarið?
22
Þú sérð, að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist með verkunum.
23
Og ritningin rættist, sem segir: ,,Abraham trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað,`` og hann var kallaður Guðs vinur.
24
Þér sjáið, að maðurinn réttlætist af verkum og ekki af trú einni saman.
25
Svo var og um skækjuna Rahab. Réttlættist hún ekki af verkum, er hún tók við sendimönnunum og lét þá fara burt aðra leið?
26
Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.