0 14 'ritn=Jh+2&ord='
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .



Advertise on JCSM - Hear JCSM's Weekly Devotions via Podcast/RSS Feed! - Skip These Ads

You can advertise your site right here!Click here to learn more!

10,000 Wise Quotes and Spiritual Sayings by Jason Gastrich, Ph.D.

 JCSM's Top 1000 Christian Sites - Free Traffic Sharing Service! Join the Online Christ-Centered Ministries!

-

Jesus Christ Saves Ministries

Click here and add this page to your favorites!



Return to the JCSM Study Center!

The Icelandic Bible

Jóhannesarguðspjall 2:

Einnig má skoða fyrri kafla eða næsta kafla.
1
Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar.
2
Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans.
3
En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: ,,Þeir hafa ekki vín.``
4
Jesús svarar: ,,Hvað varðar það mig og þig, kona? Minn tími er ekki enn kominn.``
5
Móðir hans sagði þá við þjónana: ,,Gjörið það, sem hann kann að segja yður.``
6
Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun, og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá.
7
Jesús segir við þá: ,,Fyllið kerin vatni.`` Þeir fylltu þau á barma.
8
Síðan segir hann: ,,Ausið nú af og færið veislustjóra.`` Þeir gjörðu svo.
9
Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki, hvaðan það var, en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann
10
og sagði: ,,Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara, er menn gjörast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.``
11
Þetta fyrsta tákn sitt gjörði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína, og lærisveinar hans trúðu á hann.
12
Eftir þetta fór hann ofan til Kapernaum ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum. Þar voru þau nokkra daga.
13
Nú fóru páskar Gyðinga í hönd, og Jesús hélt upp til Jerúsalem.
14
Þar sá hann í helgidóminum þá, er seldu naut, sauði og dúfur, og víxlarana, sem sátu þar.
15
Þá gjörði hann sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, líka sauðina og nautin. Hann steypti niður peningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra,
16
og við dúfnasalana sagði hann: ,,Burt með þetta héðan. Gjörið ekki hús föður míns að sölubúð.``
17
Lærisveinum hans kom í hug, að ritað er: ,,Vandlæting vegna húss þíns mun tæra mig upp.``
18
Gyðingar sögðu þá við hann: ,,Hvaða tákn getur þú sýnt oss um það, að þú megir gjöra þetta?``
19
Jesús svaraði þeim: ,,Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum.``
20
Þá sögðu Gyðingar: ,,Þetta musteri hefur verið fjörutíu og sex ár í smíðum, og þú ætlar að reisa það á þrem dögum!``
21
En hann var að tala um musteri líkama síns.
22
Þegar hann var risinn upp frá dauðum, minntust lærisveinar hans, að hann hafði sagt þetta, og trúðu ritningunni og orðinu, sem Jesús hafði talað.
23
Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni, fóru margir að trúa á nafn hans, því þeir sáu þau tákn, sem hann gjörði.
24
En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn, því hann þekkti alla.
25
Hann þurfti þess ekki, að neinn bæri öðrum manni vitni; hann vissi sjálfur, hvað í manni býr.