0 9 'ritn=Hs+1'
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .



Advertise on JCSM - Hear JCSM's Weekly Devotions via Podcast/RSS Feed! - Skip These Ads

You can advertise your site right here!Click here to learn more!

10,000 Wise Quotes and Spiritual Sayings by Jason Gastrich, Ph.D.

 JCSM's Top 1000 Christian Sites - Free Traffic Sharing Service! Join the Online Christ-Centered Ministries!

-

Jesus Christ Saves Ministries

Click here and add this page to your favorites!



Return to the JCSM Study Center!

The Icelandic Bible

Hósea 1:

Einnig má skoða næsta kafla.
1
Orð Drottins, sem kom til Hósea Beerísonar á dögum Ússía, Jótams, Akasar og Hiskía, Júdakonunga, og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs.
2
Þá er Drottinn hóf að tala við Hósea, sagði hann við Hósea: ,,Far og tak þér hórkonu og eignast hórbörn, því að landið drýgir hór og hefir snúist frá Drottni.``
3
Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur. Hún varð þunguð og fæddi honum son.
4
Og Drottinn sagði við hann: ,,Lát hann heita Jesreel, því að innan skamms vitja ég blóðskuldar Jesreels á ætt Jehú og gjöri enda á konungdómi Ísraels húss.
5
Á þeim degi sundurbrýt ég boga Ísraels á Jesreel-völlum.``
6
Og hún varð aftur þunguð og ól dóttur. Þá sagði Drottinn við Hósea: ,,Lát þú hana heita Náðvana, því að ég mun eigi framar auðsýna náð Ísraels húsi, svo að ég fyrirgefi þeim.
7
En ég mun auðsýna náð Júda húsi og hjálpa þeim fyrir Drottin, Guð þeirra, en ég mun eigi hjálpa þeim með boga, sverði, bardögum, stríðshestum né riddurum.``
8
Og er hún hafði vanið Náðvana af brjósti, varð hún enn þunguð og ól son.
9
Þá sagði Drottinn: ,,Lát hann heita Ekki-minn-lýður, því að þér eruð ekki minn lýður, og ég er ekki yðar Guð.``
10
Tala Ísraelsmanna skal verða sem sandur á sjávarströnd, sem ekki verður mældur og ekki talinn. Og í stað þess, að sagt var við þá: ,,Þér eruð ekki minn lýður!`` skal við þá sagt verða: ,,Synir hins lifanda Guðs!``
11
Júdamenn og Ísraelsmenn skulu safnast saman og velja sér einn yfirmann og hefja ferð sína heim úr landinu, því að mikill mun Jesreeldagur verða.