0 10 'ritn=Flm+1'
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .
Advertise on JCSM -
-
Skip These Ads
-
Click here and add this page to your favorites!


Bréf Páls til Fílemons 1:
.
- 1
- Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir vor, heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni Fílemon,
- 2
- svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þínu.
- 3
- Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
- 4
- Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum.
- 5
- Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú, og um kærleika þinn til hinna heilögu.
- 6
- Ég bið þess, að trú þín, sem þú átt með oss, verði mikilvirk í þekkingunni á öllu því góða, sem tilheyrir Kristi.
- 7
- Ég hlaut mikla gleði og huggun af kærleika þínum, þar eð þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu hinna heilögu.
- 8
- Því er það, að þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það, sem skylt er,
- 9
- þá fer ég þó heldur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú.
- 10
- Ég bið þig þá fyrir barnið mitt, sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus.
- 11
- Hann var þér áður óþarfur, en er nú þarfur bæði þér og mér.
- 12
- Ég sendi hann til þín aftur, og er hann þó sem hjartað í brjósti mér.
- 13
- Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér, til þess að hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins.
- 14
- En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gjöra, til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung, heldur af fúsum vilja.
- 15
- Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega,
- 16
- ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér, bæði sem maður og kristinn.
- 17
- Ef þú því telur mig félaga þinn, þá tak þú á móti honum, eins og væri það ég sjálfur.
- 18
- En hafi hann eitthvað gjört á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings.
- 19
- Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun gjalda. Að ég ekki nefni við þig, að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig.
- 20
- Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists.
- 21
- Í fullu trausti til hlýðni þinnar rita ég til þín og veit, að þú munt gjöra jafnvel fram yfir það, sem ég mælist til.
- 22
- En hafðu líka til gestaherbergi handa mér, því að ég vona, að ég vegna bæna yðar muni verða gefinn yður.
- 23
- Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. Sömuleiðis
- 24
- Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir.