Á fyrsta ríkisári Kýrusar Persakonungs blés Drottinn honum ţví í brjóst _ til ţess ađ orđ Drottins fyrir munn Jeremía rćttust _ ađ láta bođ út ganga um allt ríki sitt, og ţađ í konungsbréfi, á ţessa leiđ:
2
,,Svo segir Kýrus Persakonungur: Öll konungsríki jarđarinnar hefir Drottinn, Guđ himnanna, gefiđ mér, og hann hefir skipađ mér ađ reisa sér musteri í Jerúsalem í Júda.
3
Hver sá međal yđar, sem tilheyrir ţjóđ hans, međ honum sé Guđ hans, og hann fari heim til Jerúsalem í Júda og reisi musteri Drottins, Ísraels Guđs. Hann er sá Guđ, sem býr í Jerúsalem.
4
Og hvern ţann, sem enn er eftir, á sérhverjum ţeim stađ ţar sem hann dvelst sem útlendingur, hann skulu menn á ţeim stađ styrkja međ silfri og gulli og lausafé og kvikfénađi, auk sjálfviljagjafa til Guđs musteris í Jerúsalem.``
5
Ţá tóku ćtthöfđingjar Júda og Benjamíns og prestarnir og levítarnir sig upp _ allir ţeir, er Guđ hafđi blásiđ ţví í brjóst ađ fara og reisa musteri Drottins í Jerúsalem.
6
Og allir nágrannar ţeirra hjálpuđu ţeim um áhöld úr silfri, um gull, um lausafé og um kvikfénađ og um gersemar, auk alls ţess, er menn gáfu sjálfviljuglega.
7
Kýrus konungur lét af hendi kerin úr musteri Drottins, ţau er Nebúkadnesar hafđi flutt burt frá Jerúsalem og sett í musteri guđs síns.
8
Kýrus Persakonungur fékk ţau í hendur Mítredat féhirđi, og hann taldi ţau út í hendur Sesbasar, höfđingja Júdaćttkvíslar.
9
En talan á ţeim var ţessi: 30 gullskálar, 1.000 silfurskálar, 29 pönnur,
10
30 könnur af gulli, silfurkönnur minni háttar: 410, önnur ker 1.000 _
11
öll kerin af gulli og silfri til samans 5.400. Allt ţetta flutti Sesbasar međ sér, ţá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babýlon heim til Jerúsalem.