0 15 'ritn=1Tm+2&ord='
The Icelandic Bible - http://study.jcsm.org
Our navigation bar is loading . . . . . .
Advertise on JCSM -
-
Skip These Ads
-
Click here and add this page to your favorites!


Fyrra bréf Páls til Tímóteusar 2:
Einnig má skoða fyrri kafla eða næsta kafla.
- 1
- Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum,
- 2
- fyrir konungum og öllum þeim, sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði.
- 3
- Þetta er gott og þóknanlegt fyrir frelsara vorum Guði,
- 4
- sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.
- 5
- Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús,
- 6
- sem gaf sig sjálfan til lausnargjalds fyrir alla. Það var vitnisburður hans á settum tíma.
- 7
- Til að boða hann er ég skipaður prédikari og postuli, _ ég tala sannleika, lýg ekki _, kennari heiðingja í trú og sannleika.
- 8
- Ég vil, að karlmenn biðjist hvarvetna fyrir, með upplyftum heilögum höndum, án reiði og þrætu.
- 9
- Sömuleiðis vil ég, að konur skrýði sig sæmandi búningi, með blygð og hóglæti, ekki með fléttum og gulli eða perlum og skartklæðum,
- 10
- heldur með góðum verkum, eins og sómir konum, er Guð vilja dýrka.
- 11
- Konan á að læra í kyrrþey, í allri undirgefni.
- 12
- Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum, heldur á hún að vera kyrrlát.
- 13
- Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva.
- 14
- Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg.
- 15
- En hún mun hólpin verða, sakir barnburðarins, ef hún stendur stöðug í trú, kærleika og helgun, samfara hóglæti.